föstudagur, mars 21, 2003
Well erfiðir 10 dagar framundan og lítið verður annað gert en að vinna og vinna og vinna... Er sem stendur að gera squares fyrir Derks og ég sé það einhvern veginn ekki gerast að ég komist yfir það sem ég á eftir :( En ég vona bara það besta enda ekki hægt að gefast upp án þess að reyna. Þó að nóg sé eftir tók ég mér þó pásu til að sjá Liverpool drulla á sig á móti Celtic, eru engin takmörk fyrir því hvað þetta lið getur verið lélegt! Jæja nenni ekki að svekkja mig meira á því, þar sem ekki var við öðru að búast frá þessu liði. Sölvi hefur tekið að sér íslenskukennslu fyrir Ísraelana og virðist ganga bærilega þar sem þeir eru nú farnir að nota orðaforða sinn þegar þeir mæta manni. Orðaforðinn er þó ekki mikill en þeir hafa þó lært að segja feitabolla og rassgat ásamt öðrum þarflegum orðum sem nýtast þeim þegar og ef þeir leggja leið sína til Íslands.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli