föstudagur, mars 07, 2003

Ég get ekki sofnað svo ég ákvað að rita eitthvað hérna. Ég hef verið að spá í því afhverju svona margir Hollendingar hjóla án þess að hafa hendur á stýri ! Mér finnst þetta alltaf jafn heimskulegt, kannski þykir þetta eitthvað flott maður veit aldrei. Kannski krefst þetta áralangra æfinga og þykir jafnvel merki um visku að nota hendurnar ekki meira en þörf krefur. Mér dettur í hug einn maður á Hornafirði sem lék þetta eftir hér í den en það var Ásgeir Sigurðsson, frændi Sævars og Inga Stefáns. Hann gerði þetta með tilþrifum stundum þegar böll voru í Sindrabæ. Þá kom hann á blússandi ferð eftir Hafnarbrautinni og sleppti höndum, gott ef hann gerði þetta ekki bara Titanic style með hendur útréttar frá öxlum. Fögur sýn sem er allt að því ljóðræn í minningunni og maður heyrir hreinlega titillag Titanic í bakgrunninum. Þetta hef ég þó ekki séð neinn leika eftir hér í landi flatneskju og milljón hjóla, kannski er þetta einsdæmi í heiminum ! Ég er að fara til Amster eftir rétt rúma 3. tíma til að taka á móti Kristrúnu sem er að koma til að vera í 8 daga :) Planið er að kíkja á Waterlooplein áður en við komum aftur til Einhauss og kíkja á markaðinn þar. Það er gaman frá því að segja að síðast þegar ég var þar að gramsa í second-hand dóti þá fann ég FH búning. En bíðið við ekki bara 1 heldur 4 eða 5, það mætti halda að þeir FH-ingar hafi þurft að selja skyrturnar af baki sínu. Það gæti verið góð saga á bak við það hvernig þessar treyjur enduðu til sölu þarna, kannski að Albert hafi stolið þeim þegar hann var að FH-ast og komið þeim í verð í Amster ? En auðvitað eru þetta bara ómerkilegar vangaveltur sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum þar sem Spínó er nú maður góður og ekki þekktur fyrir annað. Annars gæti Maggi Páls hafa nappað þeim, jafnvel hafa FH-ingar gefið þær til rauðakrossins og þeir í stað þess að koma þeim til afríku selt þær til hæstbjóðanda á E-bay....... Æi þetta er ómerkileg og hreinlega leiðinlegt umræðuefni svo við skulum gleyma þessum treyjum. Ég er búinn að vera að skoða digital-myndavélar á netinu svona til að finna út hvað er gott og hvað er vont í þeim málum. En eins og svo oft þegar maður leitar á netinu verður maður bara meira og meira ringlaður og á endanum þá gefst maður upp og gefur öll kaup á tækju og tólum upp í bátinn. Ef þetta stoppar mann ekki þá er annað og það er að maður vill alltaf besta verðið því það er ekkert smá svekkjandi að kaupa eitthvað sem er svo auglýst á 50% lægra verði vikuna eftir að kaupin eiga sér stað. Ég mæli því með því ad ef fólk ætlar að fjárfesta í svona grip þá einfaldlega tali það við einhvern sem á slíkan grip og ef viðkomandi er ánægður með hann þá er bara að skella sér á 1. stk. Þegar kaupin hafa verið gerð skaltu forðast allar auglýsingar og allar búðir sem selja hlutinn í 1. ár. Þetta kemur í veg fyrir óþarfa táraflóð og leiðindi. Þetta ætla ég að láta nægja í bili og drulla mér í rúmið svo maður nái að sofa eitthvað, bið að heilsa í bili.
5


Engin ummæli: