fimmtudagur, mars 06, 2003

Jæja þá er maður kominn með íslenskt letur og alles. Maður verður bara svolítið lengur að pikka þetta inn vegna þess að ég er ekki með íslenskt lyklaborð. Aggi lét loksins sjá sig á MSN-inu, hann talaði um að tölvan sín hefði verið biluð og svo núna hefur hann ekki íslenska stafi kallinn. Vonandi nær hann þó ad laga thað í náinni framtíð svo hann geti farið að tjá sig óhindrað aftur. Tölvu greyið mitt er aftur orðið eitthvað þreytt á stöðugri notkun svo ég verð líklegast að gefa henni eins og klukkutíma hvíld fyrir vikið og kannski jafnvel taka aðeins til í henni. Það er annars lítið að gerast í Einhaus þessa dagana enda held ég að flestir séu að jafna sig eftir kjötkveðjuhátíðina. Ég tók annars lítið eftir þessari hátíð enda fór ég vart út úr húsi á meðan henni stóð enda rólegur maður með afbrigðum.

Engin ummæli: