miðvikudagur, desember 22, 2004
Dagurinn í vinnunni einkenntist af svitastorknu fólki á hlaupum með alvarleg einkenni peningaofnæmis. Eru jólin ekki hátíð ljóss og friðar eða er ég bara að misskilja eins og svo oft áður. Ég hugsaði mrð hryllingi til lagstúfins "Ég vildi að alla daga væru jól" ég er ekki viss um að það myndi ganga lengi þar sem flestir myndu væntanlega enda útúrtaugaðir og staurblankir búandi í pappakassa fyrir utan Bónus betlandi fyrir mat. Kannski myndi Jóhannes í Bónus skella sér í líki jólasveinsins og splæsa pakka núðlum á liðið. Ég þakka nú bara fyrir að þetta stendur ekki yfir lengur en raun ber vitni.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
úff fór í nýju íbúðina þína áðan og það þarf greinilega að mála svoldið!! hehe, samt alveg pimpin baðherbergi með flísum sem eru málaðar skærbleikar!
góða skemmtun í afgreiðslu,
kv. steinunn
Skrifa ummæli